Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1275, 121. löggjafarþing 487. mál: umferðarlög (ölvunarakstur, vátryggingarfjárhæðir o.fl.).
Lög nr. 48 22. maí 1997.
Fela má hlutafélagi sem ríkissjóður á hlut í, Skráningarstofunni hf., að annast skráningu ökutækja, svo og aðra umsýslu varðandi skráningu ökutækja, gerð þeirra og búnað.
Dómsmálaráðherra fer með mál er varða eignaraðild ríkisins að Bifreiðaskoðun hf. og Skráningarstofunni hf.
Dómsmálaráðherra getur sett reglur um undanþágu fyrir hreyfihamlaða frá reglum um stöðvun og lagningu ökutækja, þar á meðal reglum um notkun stöðureita og gjald fyrir hana.
Ákvæði til bráðabirgða.
Vátryggingarfjárhæðir skv. 2. mgr. 91. gr. og 1. mgr. 92. gr. umferðarlaga skulu á árinu 1998 taka breytingum í samræmi við verðlagsbreytingar frá 1. mars 1997.
Þingskjal 1275, 121. löggjafarþing 487. mál: umferðarlög (ölvunarakstur, vátryggingarfjárhæðir o.fl.).
Lög nr. 48 22. maí 1997.
Lög um breyting á umferðarlögum, nr. 50 30. mars 1987, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 45. gr. laganna:- 2. mgr. orðast svo:
- 3. mgr. orðast svo:
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 47. gr. laganna:- Inngangsmálsliður 1. mgr. orðast svo: Lögreglumaður getur framkvæmt öndunarpróf á ökumanni vélknúins ökutækis ef.
- 2. mgr. orðast svo:
- Við bætist ný málsgrein, er verður 3. mgr., og orðast svo:
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Öndunarpróf, öndunarsýni, blóðsýni o.fl.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 64. gr. laganna:- Orðið „og“ í e-lið fellur brott.
- Við bætist nýr liður, er verður f-liður, og orðast svo: gjald fyrir viðurkenningu á gerð ökutækja og búnaði þeirra, og.
- Núverandi f-liður verður g-liður.
4. gr.
65. gr. laganna, sbr. lög nr. 44/1993, orðast svo:Fela má hlutafélagi sem ríkissjóður á hlut í, Skráningarstofunni hf., að annast skráningu ökutækja, svo og aðra umsýslu varðandi skráningu ökutækja, gerð þeirra og búnað.
Dómsmálaráðherra fer með mál er varða eignaraðild ríkisins að Bifreiðaskoðun hf. og Skráningarstofunni hf.
5. gr.
2. mgr. 67. gr. laganna, sbr. lög nr. 44/1993, fellur brott.6. gr.
Á eftir XI. kafla laganna kemur nýr kafli, XI.a. SÉRAÐSTÆÐUR HREYFIHAMLAÐRA, með nýrri grein, 78. gr. a, er orðast svo:Dómsmálaráðherra getur sett reglur um undanþágu fyrir hreyfihamlaða frá reglum um stöðvun og lagningu ökutækja, þar á meðal reglum um notkun stöðureita og gjald fyrir hana.
7. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 13. maí 1997.