Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:
,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 27. janúar 1998 kl. 13.30.
Gjört í Reykjavík, 22. janúar 1998.
Ólafur Ragnar Grímsson.
-------------------
Davíð Oddsson.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``
Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismönnum, svo og starfsmönnum Alþingis óska ég gleðilegs árs og þakka hið liðna. Ég býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf þingsins megi verða landi og lýð til blessunar.