Framhaldsfundir Alþingis

Þriðjudaginn 27. janúar 1998, kl. 13:33:16 (3001)

1998-01-27 13:33:16# 122. lþ. 52.91 fundur 172#B framhaldsfundir Alþingis#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur

[13:33]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir í garð okkar alþingismanna. Jafnframt vil ég nota þetta tækifæri, nú á fyrsta fundi Alþingis á þessu ári, til þess að óska alþingismönnum og starfsmönnum Alþingis gleðilegs árs.

Þó að gert hafi verið hlé á fundum Alþingis í röskan mánuð, svo sem löng venja er til, fer því fjarri að alþingismenn og starfsmenn Alþingis hafi setið auðum höndum. Fundahöld af ýmsu tagi og önnur samskipti við kjósendur eru veigamikill þáttur í starfi alþingismanna. Þeim störfum er sinnt í fundahléum.