Mengun frá Sellafield

Þriðjudaginn 27. janúar 1998, kl. 14:12:15 (3038)

1998-01-27 14:12:15# 122. lþ. 52.1 fundur 168#B mengun frá Sellafield# (óundirbúin fsp.), umhvrh.
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur

[14:12]

Umhverfisráðherra (Guðmundur Bjarnason):

Hæstv. forseti. Ég vil árétta að þessi mál verða tekin upp á fundi umhverfisráðherra Norðurlanda nú í lok febrúar. Ég hef nýlega lesið svar umhverfisráðherra Noregs við fyrirspurn af sama toga í norska þinginu. Þar gerir hún grein fyrir því að málið verði tekið upp þar og unnið sé að undirbúningi þess fyrir þann fund. Við munum að sjálfsögðu gera það líka hér heima og ég nefndi einnig að það hafi þegar verið fjallað um það á embættismannafundi til undirbúnings ráðherrafundarins og þeirrar ályktunar sem þar verður væntanlega lögð fyrir.