Siv Friðleifsdóttir:
Virðulegur forseti. Ég vil bara að það komi skýrt fram hér vegna orða hæstv. félmrh. um að það hefðu verið aðdróttanir um að hann hefði ekki farið rétt með. Þær aðdróttanir komu alls ekki af minni hálfu. Ég ímynda mér að sumir hafi getað skilið það þannig. En þær komu frá hv. þm. Sighvati Björgvinssyni, bara svo að allt sé hér sem réttast.