Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Hugmyndin er ekki að íþyngja, síður en svo. Sveitarfélögin greiða ekki í varasjóð í tilfelli sem hv. þm. nefndi. Hins vegar verður þarna að vera varasjóður, samkvæmt lögunum um samvinnufélög.