Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. ,,Verður hægt`` er ekki sama sem ákvörðun. Það eru að skapast skilyrði til að þetta verði hægt að gera einhvern tímann í framtíðinni en það er ekki komið að því. Ríkisstjórnin hefur ekki uppi nein áform um vaxtahækkanir á þessum lánum. Ég skal ekki segja hvort einhvern tímann í framtíðinni komi til þess. En það er ekki á dagskrá eins og stendur.