![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Sólveig Pétursdóttir:
Virðulegi forseti. Þetta mál var rætt sérstaklega í allshn. og hefur verið upplýst að hæstv. dómsmrh. hefur nú skipað starfshóp sem mun kanna þetta mál sérstaklega og mun væntanlega skila skýrslu um það næsta haust. Við teljum því í meiri hluta allshn. að þessi brtt. sé ekki tímabær.