Guðmundur Hallvarðsson:
Herra forseti. Þegar þessi mál hafa komið til umræðu á Alþingi hefur afstaða mín verið sú sama og verður hér nú. Ég tel að það hafi mátt halda öðruvísi á málum en raun ber vitni og er þá ekki hallað á neinn þó svo hafi farið sem fór. En svo ég sé sjálfum mér samkvæmur, eins og ég hef áður verið, þá greiði ég atkvæði gegn þessu frv.