![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Forseti (Sturla Böðvarsson):
Vegna þeirra umræðna sem hér fóru fram áðan átti forseti fund með formönnum þingflokka. Að loknum þeim fundi er ljóst að ekki liggja fyrir óskir um breytingar á verkaskiptingu stjórnar og stjórnarandstöðu í þingnefndum. Forseti vill taka fram að hann telur að formaður heilbr.- og trn. hafi sem slíkur rækt störf sín með eðlilegum hætti í heilbr.- og trn.