Rannveig Guðmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Við jafnaðarmenn styðjum að þetta mál komi á dagskrá vegna afstöðu Alþb. og Kristínar Ástgeirsdóttur utan flokka sem hafa lýst yfir stuðningi við þetta mál á grundvelli samkomulags sem enginn veit núna hvernig verður. Ég lýsi furðu minni á þeim vinnubrögðum sem hér fara fram af hálfu stjórnarliðsins. Ég segi já.