Forseti (Guðni Ágústsson):
Vegna ummæla hv. þm. vill forseti segja að auðvitað er ábyrgðin okkar allra og forseti bindur vonir við að innan mjög skamms tíma hafi menn í þinginu, stjórn og stjórnarandstaða, náð góðu samkomulagi um framhald þingstarfanna.