Guðný Guðbjörnsdóttir:
Virðulegi forseti. Þvílík niðurlæging fyrir störf þingsins að hlusta á hæstv. forsrh. í sjónvarpinu í gær. Ég velti því fyrir mér hvort hæstv. forsrh. veit ekki hver stjórnar þinginu eða er algerlega verið að niðurlægja forseta og stjórn þingsins? Ég bara vona að hæstv. forseti boði formenn þingflokka nú þegar á fund og útskýri hvernig á svona málflutningi stendur.