Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Það er mikill ágreiningur um þetta mál úti í samfélaginu. Málsmetandi menn hafa farið fram á það við alþingismenn og Alþingi að þessu máli verði frestað til haustsins og tími verði gefinn til að ræða málið fram á haust. Það er yfirgangur að taka ekki tillit til slíkra óska. Ekkert liggur á við að afgreiða þetta mál. Því styð ég þá tillögu um að málinu verði vísað frá sem hér eru greidd atkvæði um.