Jón Kristjánsson:
Herra forseti. Þetta frv. er eitt af þeim þremur frv. þar sem verið er að eyða óvissu um eign þjóðarinnar á þeim landsvæðum á hálendinu sem eru ekki í einkaeign. Með því eru almannahagsmunir tryggðir í sessi og forsrh. kemur fram fyrir hönd eigenda þessa svæðis sem er þjóðin. Ég tel að nauðsynlegt sé að þetta komi fram um leið og ég lýsi að sjálfsögðu yfir stuðningi við frv.