Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu

Þriðjudaginn 12. maí 1998, kl. 19:23:06 (6527)

1998-05-12 19:23:06# 122. lþ. 125.2 fundur 359. mál: #A rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu# frv. 57/1998, iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur, 122. lþ.

[19:23]

Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):

Herra forseti. Það er um þetta eins og svo margt annað því miður í þessu frv. sem við erum ósammála. Ég mótmæli því að þarna sé um eignatilfærslu að ræða. Ég segi: Réttarframkvæmdin, önnur lög sem fjalla um þessa nýtingu, gerðardómsúrskurðir, dómar og þar fram eftir götunum, staðfesta að sambærileg réttindi og þarna er verið að tala um að hafi verið flutt fylgi landareign. Ég segi: Það er einfaldlega verið að setja skýrar reglur um þetta og um leið og reglurnar eru settar um ráðstöfunarréttinn eru settar reglur um nýtingu og rannsóknir.