Guðný Guðbjörnsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég trúi því ekki enn að ætlunin sé að lögfesta þetta frv. og þessa 3. gr. sem felur í sér mjög mikla eignatilfærslu til nokkurra einkaaðila. Sú eignatilfærsla ætti að sjálfsögðu að fara til þjóðarinnar sem á að eiga þær auðlindir sem um er að ræða. Ég segi nei.