Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Það er náttúrlega alveg dæmalaust þegar menn eru að fullyrða um mörg hundruð, sex hundruð, ég held sex hundruð á ári eða sex hundruð á missiri sem ekki fái úrlausn og séu á götunni og nota um þetta stór orð. Ég tel að lágtekjufólk fái betri og farsælli úrlausn í nýju kerfi en það hefur fengið í þessu.