Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég ætla að leiðrétta hv. þm. sem sagði að reglugerðin ætti sér ekki stoð í lögum. Það er ekki álit umboðsmanns Alþingis. Skýrt tekið fram segir umboðsmaður Alþingis alls ekki að hún eigi sér ekki stoð í lögum, heldur segir hann að það þurfi að skýra lögin og það er svolítið annað mál.