![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég er nú farin að halda að hæstv. ráðherra hafi ekkert lesið þetta álit frá umboðsmanni Alþingis upp á 27 síður. Það er alveg rétt að umboðsmaður er með ákall til Alþingis um að það verði skýr lagasetning. Engu að síður kemur fram í þessu áliti að ekki sé stoð fyrir þessari reglugerð. Það er alveg morgunljóst fyrir þann sem hefur lesið álitið. Það er alveg ljóst.