Reykjavíkurflugvöllur

Mánudaginn 13. október 1997, kl. 15:27:07 (386)

1997-10-13 15:27:07# 122. lþ. 7.1 fundur 45#B Reykjavíkurflugvöllur# (óundirbúin fsp.), samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur

[15:27]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég hef stefnt að því að hægt verði að bjóða Reykjavíkurflugvöll út á næsta ári og síðan geti framkvæmdir orðið á árunum 1999 og 2000 og hægt að endurbyggja Reykjavíkurflugvöll á þeim árum.