Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Vegna þessarar fyrirspurnar frá hv. þm. vill forseti segja að í fyrsta lagi getur hann ekki vitað um hvað þingmenn ræða í óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra. Í öðru lagi getur forseti upplýst að í sjálfu sér eru engar skrifaðar reglur til sem leggja hömlur á hvað þingmenn geta óskað upplýsinga um eða hvað þeir upplýsa sjálfir. Forseti ætlar ekki að leggja dóm á það hvort í umræddu tilviki hafi eitthvað verið sagt sem ekki mátti segja eða var ekki við hæfi að segja. Forseti getur ekki svarað þessu öðruvísi.