Efling atvinnu- og þjónustusvæða á landsbyggðinni

Fimmtudaginn 16. október 1997, kl. 17:56:06 (619)

1997-10-16 17:56:06# 122. lþ. 11.8 fundur 16. mál: #A efling atvinnu- og þjónustusvæða á landsbyggðinni# þál., SvanJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur

[17:56]

Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ekki ætlaði ég að særa tilfinningar hv. þm. Magnúsar Stefánssonar með því að gera honum upp skoðanir eða orð sem hann viðhafði ekki. Ég tel mig samt sem áður hafa haft ærinn grundvöll til þess að taka til orða eins og ég gerði og lýsi því enn og aftur yfir að mér þykir málflutningurinn að mörgu leyti hinn sérkennilegasti.

Ég get ekki varist því að finnast að þarna séu stjórnarliðar í rauninni að lýsa yfir ákveðnu vantrausti á framkvæmdarvald sem þeir bera þó ábyrgð á og séu með þessum hætti að reyna að segja, þeir hafa ekki staðið sig en við viljum gera það.