Háskólar

Þriðjudaginn 21. október 1997, kl. 16:20:20 (720)

1997-10-21 16:20:20# 122. lþ. 13.7 fundur 165. mál: #A háskólar# frv., SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 13. fundur

[16:20]

Svavar Gestsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir þessar glaðlegu athugasemdir í minn garð og vil benda honum á að lesa umsagnir sem þegar hafa borist hv. menntmn. um þetta frv. frá fjölmörgum aðilum, m.a. stúdentaráði Háskóla Íslands þar sem það er harkalega gagnrýnt hvernig ráðherrann hefur unnið að þessu máli.