Skyldutrygging lífeyrisréttinda

Þriðjudaginn 18. nóvember 1997, kl. 15:00:24 (1340)

1997-11-18 15:00:24# 122. lþ. 27.1 fundur 249. mál: #A skyldutrygging lífeyrisréttinda# (heildarlög) frv., SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur

[15:00]

Svavar Gestsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svörin. Mér fannst, eins og mig grunaði, að varðandi hina almennu yfirlýsingu um ákvæði til bráðabirgða, þá þýði hún ekki mjög mikið vegna þess að það hljóti að vera Alþingi á þeim tíma sem gefur þessu innihald. Eins og ég skil þetta er hér um að ræða frómar óskir sem segja ósköp lítið eins og þær standa núna.