Skyldutrygging lífeyrisréttinda

Þriðjudaginn 18. nóvember 1997, kl. 16:22:47 (1362)

1997-11-18 16:22:47# 122. lþ. 27.1 fundur 249. mál: #A skyldutrygging lífeyrisréttinda# (heildarlög) frv., VS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur

[16:22]

Valgerður Sverrisdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að koma fram með tillögur sem rjúfa þessa sátt. Ég vil bara halda því til haga að Alþingi fer með löggjafarvaldið og við megum ekki tala eins og það skipti ekki máli. Auðvitað verður þessu frv. ekki breytt að verulegu leyti í efh.- og viðskn. Ég hef ekki trú á því. Ég vil samt að það sé ekki útilokað að svo verði gert og þess vegna vildi ég ítreka þetta. Mér varð dálítið illt við að heyra hv. 8. þm. Reykv., sem hefur mikla starfsreynslu í hv. Alþingi, tala af slíkum þunga um að löggjafarþingið ætti bara helst ekkert að koma að þessu máli.