Eldsneytisgjald á Keflavíkurflugvelli

Mánudaginn 15. desember 1997, kl. 15:22:41 (2234)

1997-12-15 15:22:41# 122. lþ. 43.1 fundur 128#B eldneytisgjald á Keflavíkurflugvelli# (óundirbúin fsp.), samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur

[15:22]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég bjóst ekki við að ástæða væri til að koma þrisvar sinnum upp út af jafnskýru máli og hér liggur fyrir. Svar mitt var glöggt og greinilegt. Ég lýsti nákvæmlega hvernig málið er statt þannig að hv. þm. hefur fengið fullnægjandi svar.