Svavar Gestsson (andsvar):
Herra forseti. Ég hef nú beðið um orðið hér á eftir en það er eitt atriði sem ég þyrfti að fá skýrt í þessu nú í andsvari og það er: Hvar og hvenær afturkallaði háskólinn óskir sínar um að taka IV. kaflann út úr frv. eins og hæstv. menntmrh. fullyrti áðan að háskólinn hefði gert? Hvar og hvenær gerðist það?