Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Hv. 4. þm. Norðurl. e. þekkir þokuna á Austurlandi. Hún kemur nú stundum líka á Norðausturlandið en að lokum mun birta til í þessu máli. Heiðríkjan á Austurlandi og Norðausturlandi er meiri en annars staðar. Svo mun og verða í þessu máli.