Stjórn fiskveiða

Þriðjudaginn 16. desember 1997, kl. 22:43:31 (2435)

1997-12-16 22:43:31# 122. lþ. 44.10 fundur 275. mál: #A stjórn fiskveiða# (endurnýjunarreglur fiskiskipa) frv. 133/1997, Frsm. meiri hluta ÁRÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur

[22:43]

Frsm. meiri hluta sjútvn. (Árni R. Árnason) (andsvar):

Herra forseti. Ég efa ekki að hv. síðasti ræðumaður á erfitt með að skilja þá afstöðu meiri hluta nefndarinnar sem hann gerði síðast að umtalsefni. Þess vegna tek ég það skýrt fram aftur að við erum minnihlutamönnum alls ekki sammála um að skynsamlegt sé af þinginu að segja að innan einhvers tiltekins tíma verði tilteknar reglur afnumdar. Við teljum rétt að reglurnar standi þangað til þær verði afnumdar af þingi framtíðarinnar.