Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Mér sýnist sjálfum það vera nokkurt álitamál hvort lagastoð er fyrir því að borga þennan jólabónus. Ég óskaði eftir áliti ríkislögmanns á því máli. Það hefur ekki borist mér enn þá og ég mun að sjálfsögðu byrja á því að líta á það.