Stjórn fiskveiða

Föstudaginn 19. desember 1997, kl. 13:57:55 (2792)

1997-12-19 13:57:55# 122. lþ. 49.2 fundur 275. mál: #A stjórn fiskveiða# (endurnýjunarreglur fiskiskipa) frv. 133/1997, GHall (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur

[13:57]

Guðmundur Hallvarðsson:

Herra forseti. Ég hefði viljað stíga þetta skref með því að veita heimild til þess að útgerðarmenn mættu stækka skip ef þeim sýndist svo. Með tilliti til kvóta, breyttra útgerðarhátta, aðbúnaðar og öryggis sjómanna um borð í skipum hefði ég talið að eðlilegt hefði verið að stíga þetta skref nú án nokkurra sólarlagsákvæða heldur hér og nú að breyta lögunum. En með tilvísun til þess að stigið er skref fram á við þá samþykki ég frv.