Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Í 4. og 5. gr. frv. er verið að auka skattlagningu á skuldugustu heimilin í landinu. Það er eftir öðru hjá þessari ríkisstjórn að skattleggja sérstaklega í góðærinu fjölskyldur sem eru að missa heimili sín á nauðungaruppboð. Ég segi nei við þessari sértæku skattlagningu á skuldugustu heimilin í landinu.