Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Varðandi fundahaldið í dag vill forseti taka fram að senn mun hefjast 3. umr. um fjárlagafrv. Gert verður hlé á þeirri umræðu í hálfa klukkustund kl. 5 til að halda stutta þingflokksfundi. Forseti vill enn fremur biðja formenn þingflokka að finna sig korter fyrir 5. Þá er áætlað að atkvæðagreiðslur um afbrigði fari fram rétt fyrir kl. 5 og aftur að loknu matarhléi kl. 8.30.