Ferill 603. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1075 – 603. mál.
Frumvarp til laga
um kjaramál fiskimanna.
(Eftir 2. umr., 27. mars.)
1. gr.
Efnisákvæði miðlunartillagna þeirra sem ríkissáttasemjari lagði fram til lausnar kjaradeil
2. gr.
Séu færri menn á skipi sem stundar rækjuveiðar og landar daglega eða ísar afla um borð en við er miðað í skiptakjaraákvæðum kjarasamninga varðandi þær veiðar skiptist hlutur eða hlutir þeirra sem á vantar á milli þeirra sem á skipinu eru í réttu hlutfalli við skiptahlut þeirra.Ferðir til veiða utan efnahagslögsögu Íslands úr stofnum sem ekki eru íslenskir deilistofnar eru sérstakt kauptryggingartímabil og teljast því ekki til sama kauptryggingartímabils og aðrar veiðar skips.
3. gr.
4. gr.
Með brot gegn 3. gr. laga þessara skal fara að hætti opinberra mála og varða þau sektum ef ekki liggja við þyngri refsingar samkvæmt öðrum lögum.
5. gr.
Fylgiskjal I.
Efnisákvæði miðlunartillögu ríkissáttasemjara
til lausnar kjaradeilu
Sjómannasambands Íslands vegna aðildarfélaga þess
og
Vinnuveitendasambands Íslands vegna Landssambands íslenskra útvegsmanna vegna aðildarfélaga þess lögð fram 16. mars 1998.
(Tilvísanir í greinar kjarasamnings eru miðaðar við kjarasamning Sjómannasambands Ís
1. gr.
2. gr.
Einstakir kaupliðir, kauptrygging, tímakaup og hlífðarfatapeningar, hækki við gildistöku samnings þessa um 13%. Hinn 1. janúar 1999 hækki þessir liðir um 3,65%. Við gildistöku samnings þessa hækki fæðispeningar um 11,1%.
3. gr.
Samtala eingreiðslu dánarbóta sjómanna samkvæmt a + b-lið 1. tl. 2. mgr. 172. gr. siglinga
4. gr.
Örorkubótaþáttur slysatryggingar sjómanna skv. 172. gr. siglingalaga, nr. 34/1985, hækki úr 20% í 50%. Hækkunin taki gildi um næstu mánaðamót eftir gildistöku samnings þessa.
5. gr.
Sóttdauðabætur hækki úr 1.298.184 kr. í 1.724.663 kr.
6. gr.
Grein 5.29 verði svohljóðandi:
Hafnarfrí skal vera 1 klst. fyrir hverjar 6½ klst. af útivistartíma skips. Hafnarfrí skal þó aldrei vera skemmri tími en 30 klst. að lokinni útivist hverju sinni.
Útivist skipsins skal reiknast frá því að skipið leggur af stað úr höfn í veiðiferð til þess tíma sem skip kemur til hafnar og hafnarfrí hefst.
Hafnarfrí skal ávallt tekið í heimahöfn skips.
Nú breytist til lengingar samningsbundinn tími hafnarfrís, skal þá tilkynna skipshöfn með minnst 4ra klst. fyrirvara breyttan brottfarartíma.
Sé skipið ekki tilbúið til brottfarar klukkustund eftir tilkynntan brottfarartíma og sökin er útgerðarinnar ber skipstjóra að fresta brottför um 4 klst.
Skipverjar skulu eiga rétt á fríi þriðju hverja veiðiferð. Ekki er þó skylt að gefa fleiri en þriðjungi skipverja frí í hverri veiðiferð til þess að tryggð sé eðlileg vinnsla um borð, nema sérstakar ástæður liggi fyrir.
Eigi síðar en á 26. degi veiðiferðar og aldrei seinna en 4 sólarhringum áður en veiðiferð lýkur skal tilkynna áhöfn hvenær henni lýkur.
Tvisvar sinnum á ári skal til hagræðingar heimilt að ljúka ekki veiðiferð þó að komið sé til hafnar og hluta af aflanum landað úr skipinu. Veiðiferð skal þó aldrei vera lengri en 40 sólar
7. gr.
Dagpeningar hækki í 3.800 kr.
8. gr.
Skipverjum skal, í samráði við útgerðina, gefinn kostur á að sækja námskeið Slysavarna
Þann tíma sem skipverji sækir námskeið skal útgerðarmaður greiða honum kauptryggingu, en uppihald og ferðakostnað eftir nánara samkomulagi. Námskeiðsgjaldið greiðir viðkomandi útgerð.
9. gr.
Þegar landað er í heimahöfn á tímabilinu 1. maí – 31. desember úr fiskiskipi sem veiðir uppsjávarfisk, þ.e. loðnu, síld og kolmunna, skulu ávallt tveir undirmenn sinna löndun en aðrir eiga löndunarfrí.
Fylgiskjal II.
Efnisákvæði miðlunartillögu ríkissáttasemjara
til lausnar kjaradeilu
Farmanna- og fiskimannasambands Íslands vegna aðildarfélaga þess
og
Vinnuveitendasambands Íslands vegna Landssambands íslenskra útvegsmanna vegna aðildarfélaga þess svo og kjaradeilu
Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Bylgjunnar, Ísafirði,
og
Vinnuveitendasambands Íslands vegna Landssambands íslenskra útvegsmanna vegna Útvegsmannafélags Vestfjarða
lögð fram 16. mars 1998.
(Tilvísanir í greinar kjarasamnings eru miðaðar við kjarasamning FFSÍ.)
1. gr.
2. gr.
Einstakir kaupliðir, kauptrygging, tímakaup og hlífðarfatapeningar, hækki við gildistöku samnings þessa um 13%. Hinn 1. janúar 1999 hækki þessir liðir um 3,65%. Við gildistöku samnings þessa hækki fæðispeningar um 11,1%.
3. gr.
Samtala eingreiðslu dánarbóta sjómanna samkvæmt a + b-lið 1. tl. 2. mgr. 172. gr. siglinga
4. gr.
Örorkubótaþáttur slysatryggingar sjómanna skv. 172. gr. siglingalaga, nr. 34/1985, hækki úr 20% í 50%. Hækkunin taki gildi um næstu mánaðamót eftir gildistöku samnings þessa.
5. gr.
Sóttdauðabætur hækki úr 1.298.184 kr. í 1.724.663 kr.
6. gr.
Yfirmönnum skal í samráði við útgerðina gefinn kostur á að sækja endurmenntunarnám
Til viðbótar námskeiðum samkvæmt tilgreindum lista geta önnur námskeið staðið yfir
Þann tíma sem yfirmaður sækir námskeið samkvæmt framangreindu skal útgerðarmaður greiða honum kauptryggingu, en uppihald og ferðakostnað eftir nánara samkomulagi. Nám
Listi yfir viðurkennd endurmenntunarnámskeið.
1. Siglingatæki. Notkun og greining á einföldum bilunum. Fiskleitar- og mælitæki, ratsjá, GPS, gírókompás og sjálfstýringar.
2. Siglingasamlíkir ARPA (tölvuratsjá) og plott.
3. Stöðugleiki og skipagerð (Flutningar og fiskiskip).
4. Fjarskipti. Nýja öryggisfjarskiptakerfið GMDSS (Global Maritime Distress Safety System).
5. Siglingatæki (ratsjár, Loran, GPS), ferilritar (plotter), dýptarmælar.
6. Sjúkrahjálp fyrir sjómenn. Lyfjakistan (nýjar reglur), viðvera á slysadeild, bráðafrágangur slasaðra og flutningar, kynning á þyrludeild LHG og þyrlusveit lækna.
7. Ýmis námskeið Slysavarnaskólans í Sæbjörgu í fyrirbyggjandi öryggisfræðslu.
7. gr.
Nýtt ákvæði í kafla 5.2 um frystitogara.Grein 5.26 verði svohljóðandi:
Hafnarfrí skal vera 1 klst. fyrir hverjar 6½ klst. af útivistartíma skips. Hafnarfrí skal þó aldrei vera skemmri tími en 30 klst. að lokinni útivist hverju sinni.
Útivist skipsins skal reiknast frá því að skipið leggur af stað úr höfn í veiðiferð til þess tíma sem skip kemur til hafnar og hafnarfrí hefst.
Hafnarfrí skal ávallt tekið í heimahöfn skips.
Nú breytist til lengingar samningsbundinn tími hafnarfrís, skal þá tilkynna skipshöfn með minnst 4ra klst. fyrirvara breyttan brottfarartíma.
Sé skipið ekki tilbúið til brottfarar klukkustund eftir tilkynntan brottfarartíma og sökin er útgerðarinnar ber skipstjóra að fresta brottför um 4 klst.
Skipverjar skulu eiga rétt á fríi þriðju hverja veiðiferð. Ekki er þó skylt að gefa fleiri en þriðjungi skipverja frí í hverri veiðiferð til þess að tryggð sé eðlileg vinnsla um borð, nema sérstakar ástæður liggi fyrir.
Eigi síðar en á 26. degi veiðiferðar og aldrei seinna en 4 sólarhringum áður en veiðiferð lýkur skal tilkynna áhöfn hvenær henni lýkur.
Tvisvar sinnum á ári skal til hagræðingar heimilt að ljúka ekki veiðiferð þó að komið sé til hafnar og hluta af aflanum landað úr skipinu. Veiðiferð skal þó aldrei vera lengri en 40 sólar
8. gr.
Dagpeningar hækki í 3.800 kr.
9. gr.
Þegar landað er í heimahöfn á tímabilinu 1. maí – 31. desember úr fiskiskipi sem veiðir uppsjávarfisk, þ.e. loðnu, síld og kolmunna, skal einn úr hópi skipstjórnarmanna ávallt sinna löndun en aðrir eiga löndunarfrí.
Fylgiskjal III.
Efnisákvæði miðlunartillögu ríkissáttasemjara
til lausnar kjaradeilu
Vélstjórafélags Íslands, Vélstjórafélags Suðurnesja, Vélstjórafélags Vestmannaeyja og Vélstjórafélags Ísafjarðar
og
Vinnuveitendasambands Íslands vegna Landssambands íslenskra útvegsmanna vegna
Útvegsmannafélags Reykjavíkur, Útvegsmannafélags Akraness, Útvegsmannafélags Snæfellsness, Útvegsmannafélags Vestfjarða, Útvegsmannafélags Norðurlands, Útvegsmannafélags Austfjarða, Útvegsmannafélags Hornafjarðar, Útvegsbændafélags Vestmannaeyja, Útvegsmannafélags Þorlákshafnar, Útvegsmannafélags Suðurnesja og Útvegsmannafélags Hafnarfjarðar
lögð fram 16. mars 1998.
(Tilvísanir í greinar kjarasamnings eru miðaðar við kjarasamning Vélstjórafélags Íslands.)
1. gr.
2. gr.
Einstakir kaupliðir, kauptrygging, tímakaup og hlífðarfatapeningar, hækki við gildistöku samnings þessa um 13%. Hinn 1. janúar 1999 hækki þessir liðir um 3,65%. Við gildistöku samnings þessa hækki fæðispeningar um 11,1%.
3. gr.
Samtala eingreiðslu dánarbóta sjómanna samkvæmt a + b-lið 1. tl. 2. mgr. 172. gr. siglinga
4. gr.
Örorkubótaþáttur slysatryggingar sjómanna skv. 172. gr. siglingalaga, nr. 34/1985, hækki úr 20% í 50%. Hækkunin taki gildi um næstu mánaðamót eftir gildistöku samnings þessa.
5. gr.
Sóttdauðabætur hækki úr 1.298.184 kr. í 1.724.663 kr.
6. gr.
Greinin orðist svo:
Vélstjórum/vélavörðum skal gefinn kostur á að sækja a.m.k. eitt námskeið annað hvert ár með það að markmiði að auka hæfni þeirra í starfi hjá útgerðinni. Um er að ræða námskeið sem endurmenntunarnefnd vélstjóra á fiskiskipum hefur fjallað um og samþykkt.
Þegar vélstjóri/vélavörður sækir námskeið skv. 1. mgr. skal það gert í samráði við út
Endurmenntunarnefnd vélstjóra á fiskiskipum.
Endurmenntunarnefnd vélstjóra á fiskiskipum verði skipuð tveimur fulltrúum VSFÍ og tveimur fulltrúum LÍÚ. Starfsmenn samtakanna starfa með nefndinni og undirbúa tillögur til nefndarinnar um fræðslumál og leggja fyrir hana kostnaðaráætlun fyrir einstök námskeið. Starfsmennirnir sjái um daglegan rekstur, framkvæmd námskeiða og annað það sem nefndin felur þeim.
Hlutverk nefndarinnar er að taka ákvörðun um hvaða námskeið skuli boðið upp á, hvar og hvenær þau eru haldin. Þá skal nefndin skilgreina námskeiðskostnað og ákveða námskeiðs
Varasjóður endurmenntunarnefndar.
Stofna skal varasjóð sem verði í umsjá nefndarinnar. Stofnfé sjóðsins verði 500.000 kr., sem LÍÚ og VSFÍ leggi til að jöfnu. Í sjóðinn renni hagnaður af námskeiðum og hann greiði tap af samþykktum námskeiðum. Nefndinni er heimilt að ráðstafa fé úr sjóðnum til náms
Kostnaðaráætlun námskeiða.
Fyrir hvert námskeið verði gerð kostnaðaráætlun sem verði lögð fyrir endurmenntunarnefnd til samþykktar. Í kostnaðaráætlun komi fram sundurliðun á eftirgreindum þáttum:
1. Kostnaður við námsgagnagerð að frádregnum framlögum og styrkjum úr starfsmenntasjóði og frá öðrum aðilum.
2. Kennsla og ferðakostnaður.
3. Húsnæði, kaffi og tækjaleiga.
4. Kynning og auglýsingar.
5. Umsjónarkostnaður.
6. Tillag í varasjóð.
7. gr.
Grein 5.26 verði svohljóðandi:
Hafnarfrí skal vera 1 klst. fyrir hverjar 6½ klst. af útivistartíma skips. Hafnarfrí skal þó aldrei vera skemmri tími en 30 klst. að lokinni útivist hverju sinni.
Útivist skipsins skal reiknast frá því að skipið leggur af stað úr höfn í veiðiferð til þess tíma sem skip kemur til hafnar og hafnarfrí hefst.
Hafnarfrí skal ávallt tekið í heimahöfn skips.
Nú breytist til lengingar samningsbundinn tími hafnarfrís, skal þá tilkynna skipshöfn með minnst 4ra klst. fyrirvara breyttan brottfarartíma.
Sé skipið ekki tilbúið til brottfarar klukkustund eftir tilkynntan brottfarartíma og sökin er útgerðarinnar ber skipstjóra að fresta brottför um 4 klst.
Skipverjar skulu eiga rétt á fríi þriðju hverja veiðiferð. Ekki er þó skylt að gefa fleiri en þriðjungi skipverja frí í hverri veiðiferð til þess að tryggð sé eðlileg vinnsla um borð, nema sérstakar ástæður liggi fyrir.
Eigi síðar en á 26. degi veiðiferðar og aldrei seinna en 4 sólarhringum áður en veiðiferð lýkur skal tilkynna áhöfn hvenær henni lýkur.
Tvisvar sinnum á ári skal til hagræðingar heimilt að ljúka ekki veiðiferð þó að komið sé til hafnar og hluta af aflanum landað úr skipinu. Veiðiferð skal þó aldrei vera lengri en 40 sólar
8. gr.
Dagpeningar hækki í 3.800 kr.
9. gr.
Þegar landað er í heimahöfn á tímabilinu 1. maí – 31. desember úr fiskiskipi sem veiðir uppsjávarfisk, þ.e. loðnu, síld og kolmunna, skal einn úr hópi vélstjóra ávallt sinna löndun en aðrir eiga löndunarfrí.
10. gr.
1. Komið skal á fót úrskurðarnefnd er hefur það hlutverk að skera úr um hvort koma skuli til sérstakra greiðslna til handa vélstjórum á fiskiskipum vegna breytts verksviðs þeirra og þátttöku í tæknivæðingu fiskiskipa.
2. Nefndin skal skipuð 3 mönnum og tilnefnir hvor aðili sinn mann en sjávarútvegsráðherra oddamann sem jafnframt skal vera formaður nefndarinnar og getur ráðherra sett nefndinni tímamörk.
3. Nefndin skal gefa báðum aðilum kost á að skila greinargerðum um málið og kynna það fyrir nefndinni. Hún skal einnig kanna sjálfstætt þær forsendur sem aðilar leggja til grundvallar málflutningi sínum, svo og hvort og hvernig þær eigi við hinar einstöku teg
4. Komist nefndin að þeirri niðurstöðu að verksvið vélstjóra hafi breyst og álag í störfum aukist án þess að þeir hafi sérstaklega notið þess í launum skal hún úrskurða hvort þeim beri sérstakar greiðslur og ef svo er hversu miklar þær skulu vera og frá hvaða tíma þær eiga að koma til greiðslu.
5. Úrskurður nefndarinnar er hluti af kjarasamningi aðila og tekur gildi frá úrskurðardegi.
11. gr.
Fyrirtækjaþáttur kjarasamnings vélstjóra.
1.0 Markmið.
Markmið fyrirtækjaþáttar kjarasamnings er að efla samstarf vélstjóra og stjórnenda útgerð
Markmiðið er að þróa kjarasamninginn þannig að hann nýtist báðum aðilum til aukins ávinnings. Við það skal ávallt miðað að skilgreindur ávinningur skiptist milli vélstjóra og út
2.0 Viðræðuheimild.
Að jafnaði taki fyrirtækjaþáttur til allra starfsmanna útgerðarinnar sem kjarasamningurinn tekur til. Heimilt er þó að gera sérstaka samninga á einstökum skipum, sé um það samkomu
Viðræður um fyrirtækjaþátt fara fram undir friðarskyldu almennra kjarasamninga og skulu teknar upp með samkomulagi beggja aðila. Þá komi skriflega fram til hverra samningnum sé ætlað að ná.
Þegar viðræður hafa verið ákveðnar ber að tilkynna það VSFÍ og samtökum vinnuveitenda, VSÍ eða LÍÚ. Rétt er báðum aðilum, starfsmönnum og forsvarsmönnum útgerðar, að leita ráð
3.0 Fulltrúar vélstjóra – forsvar í viðræðum.
Vélstjórar á hverju skipi geta valið fulltrúa úr sínum hópi eða tekið allir þátt í viðræðum við forsvarsmenn útgerðar skipsins.
Fulltrúum í samninganefnd skal tryggður eðlilegur tími til að sinna undirbúningi og samn
4.0 Upplýsingamiðlun.
Áður en gengið er til gerðar fyrirtækjasamnings skulu stjórnendur upplýsa fulltrúa vél
Á gildistíma fyrirtækjasamnings skulu fulltrúar vélstjóra upplýstir um framangreind atriði og áherslur í rekstri tvisvar á ári. Þeir skulu gæta þagmælsku um þessar upplýsingar að því marki sem þær eru ekki til opinberrar umfjöllunar.
5.0 Heimil frávik.
Heimilt er með samkomulagi milli vélstjóra og útgerðarinnar að aðlaga ákvæði samnings
6.0 Endurgjald vélstjóra.
Takist samkomulag um aðlögun ákvæða kjarasamnings að þörfum útgerðar eða önnur frá
Hlutur vélstjóra getur komið fram í verktengdri greiðslu, greiðslu fastrar upphæðar á mán
7.0 Gildistaka, gildissvið og gildistími.
Samkomulag um fyrirtækjaþátt skal vera skriflegt og skal það borið undir alla þá sem sam
Heimilt er að láta fyrirtækjasamning gilda tímabundið til reynslu í allt að 3 mánuði og ganga þá endanlega frá efni hans í ljósi reynslunnar. Annars skal gildistími ótímabundinn. Að ári liðnu getur hvor aðili farið fram á endurskoðun. Náist ekki samkomulag um breytingar inn
7.1 Áhrif fyrirtækjasamnings á ráðningarkjör.
Breytingar á ráðningarkjörum sem leiða kunna af fyrirtækjasamningi eru bindandi fyrir alla hlutaðeigandi vélstjóra hafi þeir ekki mótmælt formlega gerð samningsins við stjórnendur útgerðar og samninganefnd vélstjóra áður en til atkvæðagreiðslu kom.
Ákvæði fyrirtækjasamnings gilda jafnt um þá vélstjóra sem við störf eru þegar samningur er samþykktur samkvæmt ákvæðum þessa kafla, sem og þá sem síðar ráðast til starfa, enda hafi þeim verið kynnt efni hans við ráðningu.
8. Meðferð ágreinings.
Komi upp ágreiningur innan fyrirtækis um skilning eða framkvæmd fyrirtækjasamnings og ekki tekst að leysa hann með viðræðum á milli aðila á vinnustað er vélstjórum heimilt að leita aðstoðar Vélstjórafélagsins eða fela því málið til úrlausnar.
Náist ekki samkomulag um mat á áhrifum uppsagnar skv. lokaml. 7. gr. getur hvor aðili skotið honum til úrskurðar óháðs aðila. 65% kostnaðar greiðist af fyrirtæki og 35% af starfs
Fylgiskjal IV.
Efnisákvæði miðlunartillögu ríkissáttasemjara
til lausnar kjaradeilu
Alþýðusambands Vestfjarða vegna
Sjómannafélags Ísfirðinga, Verkalýðs- og sjómannafélags Álftfirðinga, Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur,
Verkalýðsfélags Patreksfjarðar, Verkalýðsfélagsins Skjaldar,
Verkalýðsfélags Hólmavíkur, Verkalýðsfélagsins Súganda,
Verkalýðsfélagsins Varnar, Verkalýðsfélagsins Brynju,
Verkalýðsfélags Tálknafjarðar og Verkalýðsfélags
Kaldrananeshrepps vegna sjómanna
og
Vinnuveitendasambands Íslands vegna Landssambands íslenskra útvegsmanna f.h. Útvegsmannafélags Vestfjarða
lögð fram 16. mars 1998.
1. gr.
2. gr.
Einstakir kaupliðir, kauptrygging, tímakaup og hlífðarfatapeningar, hækki við gildistöku samnings þessa um 13%. Hinn 1. janúar 1999 hækki þessir liðir um 3,65%. Við gildistöku samnings þessa hækki fæðispeningar um 11,1%.
3. gr.
Samtala eingreiðslu dánarbóta sjómanna samkvæmt a + b-lið 1. tl. 2. mgr. 172. gr. siglinga
4. gr.
Örorkubótaþáttur slysatryggingar sjómanna skv. 172. gr. siglingalaga, nr. 34/1985, hækki úr 20% í 50%. Hækkunin taki gildi um næstu mánaðamót eftir gildistöku samnings þessa.
5. gr.
Sóttdauðabætur hækki úr 1.298.184 kr. í 1.724.663 kr.
6. gr.
Dagpeningar hækki í 3.800 kr.
7. gr.
Grein 5.29 verði svohljóðandi:
Hafnarfrí skal vera 1 klst. fyrir hverjar 6½ klst. af útivistartíma skips. Hafnarfrí skal þó aldrei vera skemmri tími en 30 klst. að lokinni útivist hverju sinni.
Útivist skipsins skal reiknast frá því að skipið leggur af stað úr höfn í veiðiferð til þess tíma sem skip kemur til hafnar og hafnarfrí hefst.
Hafnarfrí skal ávallt tekið í heimahöfn skips.
Nú breytist til lengingar samningsbundinn tími hafnarfrís, skal þá tilkynna skipshöfn með minnst 4ra klst. fyrirvara breyttan brottfarartíma.
Sé skipið ekki tilbúið til brottfarar klukkustund eftir tilkynntan brottfarartíma og sökin er útgerðarinnar ber skipstjóra að fresta brottför um 4 klst.
Skipverjar skulu eiga rétt á fríi þriðju hverja veiðiferð. Ekki er þó skylt að gefa fleiri en þriðjungi skipverja frí í hverri veiðiferð til þess að tryggð sé eðlileg vinnsla um borð, nema sérstakar ástæður liggi fyrir.
Eigi síðar en á 26. degi veiðiferðar og aldrei seinna en 4 sólarhringum áður en veiðiferð lýkur skal tilkynna áhöfn hvenær henni lýkur.
Tvisvar sinnum á ári skal til hagræðingar heimilt að ljúka ekki veiðiferð þó að komið sé til hafnar og hluta af aflanum landað úr skipinu. Veiðiferð skal þó aldrei vera lengri en 40 sólar
8. gr.
Skipverjum skal í samráði við útgerðina gefinn kostur á að sækja námskeið Slysavarna