Ferill 615. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1351 – 615. mál.



Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1998.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um tillöguna og fengið á sinn fund Halldór Ásgrímsson utanríkisráð herra, Helga Ágústsson, ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, Árna Kolbeinsson, ráðu neytisstjóra sjávarútvegsráðuneytisins, Jóhann Sigurjónsson sendiherra, Hjálmar W. Hann esson, skrifstofustjóra alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, og Tómas H. Heiðar, aðstoð arþjóðréttarfræðing utanríkisráðuneytisins. Utanríkismálanefnd óskaði eftir umsögn sjávar útvegsnefndar og er hún birt sem fylgiskjal með álitinu.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 28. apríl 1998.


                                  

Össur Skarphéðinsson,


varaform., með fyrirvara.


Tómas Ingi Olrich,


frsm.


Gunnlaugur M. Sigmundsson.


         

Siv Friðleifsdóttir.



Lára Margrét Ragnarsdóttir.



Árni R. Árnason.



Margrét Frímannsdóttir,


með fyrirvara.


Kristín Ástgeirsdóttir,


með fyrirvara.


Vilhjálmur Egilsson.





Fylgiskjal.
    

Umsögn sjávarútvegsnefndar.


(20. apríl 1998.)



    Sjávarútvegsnefnd hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Árna Kolbeinsson frá sjávarútvegsráðuneytinu. Nefndin mælir með samþykkt tillögunnar en minni hlutinn vísar jafnframt til afstöðu í umsögn sjávarútvegsnefndar sem send var utanríkismálanefnd vorið 1996 þegar upphaflegi samningurinn um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum var til um fjöllunar á Alþingi.
    Sjávarútvegsnefnd beinir þeim tilmælum til utanríkismálanefndar að nefndin hlutist til um að samningur sá er hér um ræðir verði birtur hið fyrsta í C-deild Stjórnartíðinda eftir að Al þingi hefur lokið afgreiðslu málsins.

F.h. sjávarútvegsnefndar,
Steingrímur J. Sigfússon, formaður.