Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1544, 122. löggjafarþing 553. mál: tekjuskattur og eignarskattur (skatthlutfall fyrirtækja, arðgreiðslur o.fl.).
Lög nr. 95 16. júní 1998.
Þingskjal 1544, 122. löggjafarþing 553. mál: tekjuskattur og eignarskattur (skatthlutfall fyrirtækja, arðgreiðslur o.fl.).
Lög nr. 95 16. júní 1998.
Lög um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- Á eftir orðunum „eða teljast hafa af tekjur“ í 5. tölul. kemur: þar með talinn söluhagnað.
- Á eftir orðinu „sérþekkingu“ í 6. tölul. kemur: svo og af söluhagnaði vegna slíkra eigna.
- Á eftir orðinu „tekjur“ í 7. tölul. kemur: þar með talinn söluhagnað.
2. gr.
2. mgr. 3. tölul. 2. mgr. 8. gr. laganna fellur brott.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:- Á eftir 1. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður er orðast svo: Þó skal kaupverð hlutabréfa í eigu rekstraraðila, þar með talið einstaklinga, ákvarðast sem upphaflegt kaupverð þeirra þegar það hefur verið hækkað eða lækkað samkvæmt verðbreytingarstuðli eftir ákvæðum 26. gr. til söluárs, enda séu hlutabréfin eignfærð í atvinnurekstrinum.
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein er orðast svo:
4. gr.
8. tölul. 31. gr. laganna orðast svo: Þá fjárhæð sem hlutafélög, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 2. gr., og félög og samlög sem falla undir 2. og 4. tölul. 1. mgr. 2. gr. hafa fengið greidda í arð skv. 4. tölul. C-liðar 7. gr. af hlutum og hlutabréfum í félögum er greinir í 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. Ákvæði þetta skal einnig taka til arðs frá hlutafélögum sem skráð eru erlendis ef það félag sem arðinn fær sýnir fram á að hagnaður hins erlenda félags hefur verið skattlagður með sambærilegum hætti og gert er hér á landi.5. gr.
Við 32. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Keypt viðskiptavild. Kaup á ófyrnanlegum réttindum skv. 50. gr. A teljast ekki til keyptrar viðskiptavildar.6. gr.
Við 38. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Keypt viðskiptavild að lágmarki 10% en að hámarki 20%.7. gr.
Við 52. gr. laganna bætist nýr töluliður sem orðast svo: Kostnað vegna greiðslna, gjafa eða annars sem ólögmætt er skv. 109. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, til manna sem ráðnir eru eða kjörnir til opinberra starfa á sviði löggjafarvalds, dómsvalds eða stjórnsýslu, hvort heldur er á Íslandi eða í öðrum ríkjum eða hjá alþjóðasamtökum og stofnunum sem þjóðríki, ríkisstjórnir eða alþjóðastofnanir eru aðilar að.8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 72. gr. laganna:- Í stað hlutfallstölunnar „33%“ í 1. mgr. kemur: 30%.
- Í stað hlutfallstölunnar „41%“ í 2. mgr. kemur: 38%.
- Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Í stað orðanna „3. mgr.“ í 4. mgr. kemur: 4. mgr.
9. gr.
Orðið „innlendum“ í 1. mgr. 78. gr. laganna fellur brott.10. gr.
Lög þessi öðlast gildi þegar í stað og koma til framkvæmda við álagningu á árinu 1999 vegna tekna á árinu 1998 og eigna í lok þess.Samþykkt á Alþingi 4. júní 1998.