Ættleiðingar

Fimmtudaginn 04. febrúar 1999, kl. 13:51:16 (3309)

1999-02-04 13:51:16# 123. lþ. 59.6 fundur 433. mál: #A ættleiðingar# (heildarlög) frv., menntmrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 59. fundur, 123. lþ.

[13:51]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Frv. til nýrra ættleiðingarlaga sem ég mæli fyrir var samið af sifjalaganefnd en í sifjalaganefnd áttu sæti dr. Ármann Snævarr, fyrrv. hæstaréttardómari, sem var formaður nefndarinnar, Guðrún Erlendsdóttir hæstaréttardómari og Drífa Pálsdóttir, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumrn. Ritari nefndarinnar var Margrét Hauksdóttir, deildarstjóri í sama ráðuneyti.

Mikilvægur þáttur frv. varðar ákvæði sem þörf er á sem grundvelli að fyrirhugaðri fullgildingu Íslands á Haag-samningnum frá 29. maí 1993, um vernd barna og samvinnu varðandi ættleiðingar milli landa. Samningnum er ætlað að samræma þau skilyrði sem sett eru af hálfu stjórnvalda aðildarríkja hans svo að ættleiðingar milli landa megi fara fram með hagsmuni barna í fyrirrúmi.

Tilgangur samningsins er að við ættleiðingar milli landa séu grundvallarmannréttindi barna virt og að komið sé í veg fyrir brottnám barna og verslun með börn og að tryggja að samningsríki viðurkenni ættleiðingar sem fara fram í samræmi við samninginn. Í tengslum við samningu frv. fór fram víðtæk könnun á framkvæmd gildandi ættleiðingarlaga, nr. 15/1978, og einnig var höfð hliðsjón af þróun ættleiðingarlöggjafar á Norðurlöndum og víðar. Að þessu leyti er lagt til í frv. að ýmis nýmæli um ættleiðingar verði lögfest auk þess sem ég gat um áður um nauðsynleg ákvæði sem setja þarf sem grundvöll fyrir fyrirhugaða fullgildingu á Haag-samningnum. Þá eru í frv. ýmis ákvæði um sama efni og gildandi ættleiðingarlög fjalla um en þau eru gerð fyllri og ítarlegri en í þeim lögum.

Efnisskipun í frv. sem ég mæli fyrir er á þann veg að það skiptist í átta kafla. Meðal mikilvægustu nýmæla í I. kafla er það að karl og kona sem verið hafa í óvígðri sambúð í a.m.k. 5 ár hafa sömu heimildir til ættleiðingar og hjón, enn fremur heimild til handa einhleypum manni til að ættleiða barn ef sérstaklega stendur á og ættleiðing er ótvírætt talin barninu til hagsbóta. Heimild einhleypra einstaklinga til ættleiðingar hefur ekki verið áður lögskráð en einhleypum einstaklingum hefur nokkrum sinnum verið veitt ættleiðingarleyfi. Styðst sú framkvæmd við stjórnsýsluhefð og þykir réttmætt að leggja til að þessi markaða stefna verði lögfest að þeim skilyrðum uppfylltum sem í frv. greinir.

Í gildandi ættleiðingarlögum eru ekki samfelld ákvæði um meðferð og úrlausn ættleiðingarmála og raunar er lítt fjallað um þessa hlið málsins. Þessar reglur hafa mótast af stjórnsýsluvenjum og verklagsreglum ráðuneytisins og við meðferð þessara mála gilda nú ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Rök þykja þó bera til þess að festa ýmsar grunnreglur um þetta efni í ættleiðingarlögum og er lagt til að svo verði gert með ákvæðum II. kafla. Gefur það borgurunum gleggri innsýn í gangverk þess ferils sem liggur að baki útgáfu ættleiðingarleyfis. Lagasetning hlýtur þó að miðast við meginreglur um þetta og til fyllingar koma svo ýmsar stjórnvaldsreglur. Með ákvæðum þessa kafla er að því stefnt að treysta undirbúning að úrlausn ættleiðingarmála. Má einkum nefna nýmæli 17. gr. sem heimilar ráðherra að skipa þriggja manna sérfræðinganefnd er veiti faglega umsögn um einstakar umsóknir sem ráðuneytið æskir álits hennar um. Sú umsögn er þá til viðbótar við umsögn barnaverndarnefndar skv. 16. gr. Verulegt gagn gæti orðið að slíkri álitsgerð í ættleiðingarmálum þegar vafi leikur á hvort veita skuli leyfi til ættleiðingar.

Í III. kafla frv. er í 22. gr. ákvæði um dómsmál vegna ákvörðunar dómsmrh. um veitingu ættleiðingarleyfis þótt samþykki lögbærra manna liggi ekki fyrir, sbr. 19. gr. frv. Í tengslum við það eru svo ákvæði 23. og 24. gr. varðandi réttarfar o.fl.

IV. kafli frv. er einungis ein grein, 25. gr., sem fjallar um réttaráhrif ættleiðingar. Greinin er efnislega óbreytt frá gildandi ættleiðingarlögum.

Ákvæði V. kafla frv. eru nýmæli í ættleiðingarlögum. Þar er kveðið á um að kjörforeldrar skuli skýra kjörbarni frá því að það sé ættleitt og það skuli að jafnaði gert eigi síðar en þegar barn verður sex ára. Enn fremur er lagt til að kjörbarn sem orðið er 18 ára eigi rétt á að fá tiltækar upplýsingar um það frá dómsmrn. hverjir séu kynforeldrar þess eða fyrri kjörforeldrar.

VI. kafli frv. geymir ákvæði um ættleiðingar barna erlendis og eru þau nýmæli í ættleiðingarlögum. Almenn ákvæði ættleiðingarlaga eiga vitaskuld við um ættleiðingar sem fram fara á erlendum börnum hér á landi, bæði um það hver leysi úr ættleiðingarumsóknum, um almenn og sérgreind skilyrði ættleiðinga, umsóknir um þær og reglur um meðferð og úrlausn máls, réttaráhrif ættleiðinga o.s.frv. Við ættleiðingar milli landa reynir þó á ýmis sérstæð vandamál sem hafa m.a. orðið efni til Haag-samningsins frá 29. maí 1993. Ákvæði kaflans eru í tengslum við Haag-samninginn. Í 28. gr. frv. er kveðið á um framkvæmd samningsins verði hann fullgiltur. Hér eru fyrirmæli um að dómsmrh. hafi yfirumsjón með framkvæmd Haag-samningsins hér á landi.

Við 29. gr. er mælt fyrir um heimild manna búsettra hér til að ættleiða barn erlendis. Þarf dómsmrh. að samþykkja það fyrir fram með útgáfu forsamþykkis. Í frv. þessu er notað orðið forsamþykki yfir það skjal sem hingað til hefur verið kallað vilyrði.

30. gr. fjallar um umsókn um forsamþykki. Væntanlegir kjörforeldrar erlendra barna sem koma oft úr framandi umhverfi þurfa að búa sig undir uppeldishlutverk sitt að nokkru með öðrum hætti en þegar þeir taka að sér íslenskt barn til ættleiðingar. Er æskilegt að þeir njóti sérstakrar fræðslu í þessu sambandi.

Í 2. mgr. 30. gr. frv. er lagt til að dómsmrh. geti mælt fyrir um að umsækjendum um ættleiðingar erlendra barna sé skylt að sækja námskeið til undirbúnings fyrir ættleiðinguna og er gert er ráð fyrir að reglugerð verði sett um tilhögun þess.

Víða um lönd þykir tryggilegast að stjórnvöld og löggild ættleiðingarfélög annist milligöngu um ættleiðingar milli landa. Á síðustu árum hefur Íslensk ættleiðing, sem viðurkennd er af dómsmrn., séð um slíka milligöngu og m.a. komið á sambandi milli væntanlegra ættleiðenda og stjórnvalda eða ættleiðingarfélaga í heimaríki barns. Segja má að Haag-samningurinn stefni að því að löggild ættleiðingarfélög eða stjórnvöld annist þessa milligöngu.

Í 34. og 35. gr. frv. eru ákvæði um ættleiðingarfélög og milligöngu um ættleiðingar. Er dómsmrh. heimilað að löggilda slík félög og setja reglugerð um þau, sbr. 34. gr. Getur ráðherra mælt svo fyrir að þeim er ættleiða vilja barn erlendis sé skylt að leita aðstoðar við ættleiðinguna hjá löggiltu ættleiðingarfélagi. Jafnframt er svo mælt fyrir í 35. gr. að slík félög ein hafi milligöngu um ættleiðingar.

Ákvæði VII. kafla frv. eru að verulegu leyti nýmæli að því er varðar lögskráðar reglur.

Loks er í VIII. kafla frv. ákvæði um stjórnvaldsreglur, gildistöku, brottfallin lög ásamt ákvæðum um lagaskil.

Herra forseti. Ég hef gert grein fyrir meginefni þessa lagafrv. og legg til að því verði að lokinni umræðunni vísað til 2. umr. og meðferðar hjá hv. allshn.