Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst að við eigum mikið undir því komið að hv. formaður heilbr.- og trn. bretti upp ermarnar því að ég veit að hann er kraftmikill maður og mikið mæðir á honum. Við þurfum ekkert að deila um það hvort hann hafi haft og fá eða of mörg mál. Við getum bara flett þessu upp í þingtíðindum.
Ég þakka hv. formanni fyrir að ætla að drífa þetta í gegn. Ég heyri að hann er tilbúinn til þess.