Skerðing örorkubóta

Mánudaginn 01. mars 1999, kl. 15:13:28 (4172)

1999-03-01 15:13:28# 123. lþ. 74.1 fundur 302#B skerðing örorkubóta# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 123. lþ.

[15:13]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Ég vil bara ítreka mitt fyrra svar. Þessar bætur eru tekjutengdar. Það er sama hvort um laun er að ræða fyrir vinnu eða fjármagnseignir. Mig langar að spyrja hv. þm., af því að hennar flokkur hefur lagt fram tillögur um fjármagnstekjuskatt, hvernig hún hugsi það einmitt gagnvart þessum aðilum.