Langtímaáætlun í gerð jarðganga á Íslandi

Þriðjudaginn 09. mars 1999, kl. 23:07:41 (4600)

1999-03-09 23:07:41# 123. lþ. 82.23 fundur 356. mál: #A langtímaáætlun í gerð jarðganga á Íslandi# þál. 26/123, Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 123. lþ.

[23:07]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Forseti vill svara þeirri fyrirspurn hv. þm. fyrir sig. Hér liggur fyrir afgreiðsla þar sem sjö hv. nefndarmenn í samgn. hafa náð saman um svo breytta tillögu. Það er niðurstaða sem þessi þinglega nefnd hefur tekið. Forseti skal að vísu viðurkenna það fyrir sitt leyti að hér er um nýja tillögu að ræða og hefði þess vegna verið eðlilegri á nýju þingskjali því hún er allt annars efnis. En þetta er niðurstaða samgn. og þannig hefur málið komið aftur inn í þingið.