Íþróttasamstarf milli Vestur-Norðurlanda

Miðvikudaginn 10. mars 1999, kl. 21:27:02 (4772)

1999-03-10 21:27:02# 123. lþ. 84.16 fundur 196. mál: #A íþróttasamstarf milli Vestur-Norðurlanda# þál. 22/123, Frsm. SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 84. fundur, 123. lþ.

[21:27]

Frsm. menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá menntmn. um tillögu til þál. um eflingu íþróttasamstarfs milli Vestur-Norðurlanda.

Nefndin hefur fjallað um tillöguna sem flutt er af þingmönnum í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins. Alþingi hefur lagt áherslu á góð og náin samskipti við næstu nágranna okkar, Færeyinga og Grænlendinga. Telur nefndin að tillagan falli vel að þeim markmiðum og leggur til að hún verði samþykkt.

Menntmn. er einróma í afgreiðslu sinni.