1999-03-11 00:27:13# 123. lþ. 84.26 fundur 509. mál: #A Háskóli Íslands# (heildarlög) frv. 41/1999, menntmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 84. fundur, 123. lþ.

[24:27]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason) (andsvar):

Herra forseti. Þær tillögur sem hér eru koma frá hv. menntmn. en þær eru forsenda þess að sátt sé um að þetta frv. nái fram að ganga á hinu háa Alþingi, eins og hv. þingmenn hafa sjálfir sagt. Ég tel því að hv. þm. hafi staðið að þessum tillögum með fyrirvara sem þeir hafa gert grein fyrir þannig að frv. veltur á því að málið verði afgreitt á þessum forsendum.