1999-03-11 02:35:37# 123. lþ. 84.94 fundur 352#B framhald þingfundar# (um fundarstjórn), Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 84. fundur, 123. lþ.

[26:35]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Forseti vill taka fram vegna ræðu hv. þm. að ljóst var að til stóð að ljúka dagskrá þessa fundar. Forseti metur það svo að þar sem aðeins þrjú mál eru enn órædd taki það stuttan tíma og biður þingmenn um þolinmæði stutta stund þannig að dagskránni megi ljúka.