Rannsókn kjörbréfs

Mánudaginn 19. október 1998, kl. 15:03:55 (558)

1998-10-19 15:03:55# 123. lþ. 13.1 fundur 67#B rannsókn kjörbréfs#, SP
[prenta uppsett í dálka] 13. fundur, 123. lþ.

[15:03]

Frsm. kjörbréfanefndar (Sólveig Pétursdóttir):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur fjallað um kjörbréf 2. varaþm. Alþfl. í Reykjavík, Þórunnar H. Sveinbjörnsdóttur, sem landskjörstjórn gaf út í dag en 1. varaþm. flokksins í kjördæminu, Hrönn Hrafnsdóttir, getur ekki tekið sæti að þessu sinni sökum anna.

Nefndin hefur kynnt sér kjörbréfið og ekki fundið neitt athugavert og leggur til að það verði samþykkt.