Rannsókn kjörbréfs

Mánudaginn 02. nóvember 1998, kl. 15:08:45 (713)

1998-11-02 15:08:45# 123. lþ. 17.1 fundur 77#B rannsókn kjörbréfs#, SP
[prenta uppsett í dálka] 17. fundur, 123. lþ.

[15:08]

Sólveig Pétursdóttir:

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur fjallað um kjörbréf 2. varaþm. Þjóðvaka, hreyfingar fólksins, í Reykn., Jörundar Guðmundssonar, sem landskjörstjórn gaf út í dag. 1. varaþm. flokksins í kjördæminu, Lilja Á. Guðmundsdóttir, getur ekki tekið sæti að þessu sinni sökum anna.

Nefndin hefur kynnt sér kjörbréfið og ekki fundið neitt athugavert og leggur til að það verði samþykkt.