Sighvatur Björgvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Það var eins og mig grunaði að hæstv. utanrrh. meinti annað en hann sagði en þetta sýnir bara hversu hætt er við því að menn geti misskilið hluti ef orðalagið er ekki alveg nákvæmt. Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir að taka af öll tvímæli um það. Auðvitað meinti hann ekki afarkosti í þessu sambandi þó að honum yrði á að segja það.