Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Það liggur ekki fyrir hvenær hafist verður handa um verkið. Enn er undirbúningi þess ekki lokið. Það þarf að ganga frá skipulagi og útboðum og þar fram eftir götunum en eins og ég sagði munu tillögur flugmálastjóra liggja fyrir í þessari viku eða hinni næstu.