1998-11-30 15:13:02# 123. lþ. 29.91 fundur 122#B afgreiðsla heilbrigðis- og trygginganefndar á málum um gagnagrunn á heilbrigðissviði# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 123. lþ.

[15:13]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Það er svo í lýðræðinu að nefndir eru skipaðar meiri hluta og minni hluta. Meiri hlutinn er með sex menn í þessari nefnd og minni hlutinn á þar þrjá. Þetta er niðurstaða nefndarinnar og fátt meira um það að segja. Þetta þekkja reyndir þingmenn og vita að svona er nú lýðræðið einu sinni.