Egill Jónsson:
Virðulegi forseti. Auðvitað fagna ég því að þessi fyrirspurn skuli vera komin fram, hún er gott innlegg í það að rifja upp þetta mál. Ég vil hins vegar benda skýrt á að í þeirri till. til þál. um byggðamál sem fyrir liggur er kveðið á um að fullur jöfnuður skuli ríkja í þessum efnum þannig að um leið og við höfum afgreitt þá tillögu með þeim texta sem fyrir liggur kemur jöfnuður á alla þessa þjónustu.